…hann er ekki í tízku í dag. Hvenær var síðast rætt um fólksfjölgunarvandann?
Fólksfjölgunarvandinn
mars 26, 2008 af valinkunnurandansmadurSkuggalegt…
mars 24, 2008 af valinkunnurandansmadur…hversu góður ég er í keilu miðað við að fara að jafnaði einu sinni á tveggja ára fresti.
Vífilsfell
mars 18, 2008 af valinkunnurandansmadurÉg gerðist sekur um að vanmeta gróflega gæði útsýnis af tindi Vífilsfells. Það er 655 m hátt og var gönguhækkunin eitthvað um 450 metrar. Skyggni var frábært á laugardaginn. Þótt gangan væri ekki löng tók hún ágætlega á. Fyrst var farið upp langa samfellda og frekar bratta brekku, þar til komið var upp á sléttu, hún var svo gengin, eiginlega alveg lárétt, þangað til komið var að annarri brattri langri brekku. Svo var örlítið príl efst við toppinn, en ekkert mikið. Ætli við höfum ekki verið 3,5 klst frá bílnum og í hann aftur, með góðu stoppi efst, matartíma o.s.frv.
Lúxuslið 19. aldar
mars 11, 2008 af valinkunnurandansmadurÉg er orðinn langþreyttur á því tali að lífsgæði hafi hér verið mun verri á 19. öld en 20. öld. Skv. mínum heimildum er þetta alrangt. Ég vek t.d. athygli á því að á 19. öld neytti fólk einungis lífrænt ræktaðrar matvöru. Fátækt?
Lúxuslið!
Jóga
mars 11, 2008 af valinkunnurandansmadurNú hef ég ekki stundað jóga, en ég er haldinn fordómum gagnvart því. Fordómarnir stafa af fasi fólks sem er mjög innviklað í þessa iðkun. Mér finnst það fá á sig eitthvert tilgerðarlegt (en þó reyndar afar vinalegt) yfirbragð, sem ég er ekki alveg að kaupa.
Búrfell í Grímsnesi
mars 10, 2008 af valinkunnurandansmadurVið MDN gengum á þetta fjall á laugardaginn. Ótrúlega gott veður, ótrúlegt útsýni. Það er svosem ekki mikið meira um þetta að segja, nema hvað þetta fjall verður að teljast mjög útsýni/erfiði hagkvæmt til uppgöngu. Þetta er stapi, en ofan á honum er lítið vatn, eins og ofan í hálfgerðum gíg. Samtals var þetta um þriggja tíma ganga, upp, hringinn í kringum vatnið og niður aftur. Snjór var töluvert mikill og þurfti sums staðar að klofa hann upp fyrir hné, enda völdum við okkur vel bratta hlíð til að fara upp, en ekki hina aflíðandi suðurhlíð.
Svo var það heldur ekki leiðinlegt að renna sér á rassinum niður hlíðarnar á bakaleiðinni. Útsýnið var frábært. Þarna sameinar maður útsýni yfir Þingvallavatn, eiginlega allt Sogið, Ingólfsfjall, Hengilinn og hið krumpaða umhverfi hans, Botnssúlur, Skjaldbreiði, Lyndgalsheiði, Laugarvatn og restina af hinum sunnlenska fjallahring: Hekla, Tindfjöll, Þríhyrningur og Eyjafjallajökull. Allt var hulið snjó. Það glitraði allt. Hafið, árnar og jörðin.
Við tókum nokkrar myndir, með síma MDN, en enn á eftir að ná þeim út vegna tæknilegra örðugleika. Von er á birtingu þeirra hér.
Þrífarar vikunnar
mars 3, 2008 af valinkunnurandansmadur
Birgitta Haukdal

Eva LaRue

Fjallganga næstu helgi
febrúar 26, 2008 af valinkunnurandansmadurÞar sem Una mun yfirgefa mig aðfaranótt laugardagsins næstkomandi verð ég að finna eitthvað til að dreifa huganum þann sama dag. Mér segir svo hugur að þó ég segðist ætla að gera eitthvað voðalega merkilegt, eins og að læra, þá yrði eitthvað lítið um efndir.
Því hef ég afráðið að klífa einhverja hrúgu á suður-, suðvestur- eða vesturlandi, um næstu helgi. Annað hvort á laugardeginum eða sunnudeginum. Þeir sem vilja koma með eru boðnir velkomnir. Þegar hef ég sett mig í samband við stórmenni á borð við MDN og ÁH, sem báðir eru að hugsa sinn gang. Þess má geta að eins og veðurhorfur eru nú er ekki von á öðru en fullkomnu gönguveðri, sé fólk rétt klætt. Eins stigs frost og andvari, 1 m/sek. Hálfskýjað. Þetta er kjörið.
Ekki er ráðgert að leggja á nein stór fjöll, enda snjór á fjöllum og ekki hægt að fara hratt yfir. Dagsljósið ennþá takmarkað. Þeir hólar sem mér hefur dottið í hug að rölta á eru: Vífilfell, Hengillinn, Keilir eða kannski eitthvað í Borgarfirði. Hvað það ætti að vera veit ég svo sem ekki, en ekki skortir hólana þar heldur.
Uppástungur eru vel þegnar.
Kommúnan – Tillsammans
febrúar 23, 2008 af valinkunnurandansmadurFarið var á Kommúnuna í Borgarleikhúsinu í gær, á nýja sviðinu. Áhorfendapallar voru beggja megin sviðsins, leikmyndin trégrind á þremur hæðum með hálfgegnsæjum tjöldum sem hægt var að draga til og frá. Allt innvols í grindinni var síðan hippalegt, gólfpúðar, óróar, hengirúm og slíkt.
Það var margt gott í þessari sýningu. Hún var skemmtileg og vel leikin. Mæli með henni við hvern sem er. Hins vegar er ég kannski þannig gerður að ég vil sterkari framvindu og meiri sögu í leikritinu. Þessi sýning gekk meira út á að skapa ákveðna stemningu og vera með margvíslegar vísanir í fortíðina. Jú, svo var auðvitað saga líka en það fór samt ekki mjög mikið fyrir henni.
Það gerði þó ekki til, enda megintilgangurinn að gera grín að marxískum hugsjónum og því fáránlega bulli sem verður útkoman, sé þeim fylgt í öllu daglegu lífi. Ég hló nokkrum sinnum upphátt, en aldrei neitt svona skelli-skelli.
Töluverð nekt var á sviðinu, samtals tvær píkur og einn tilli. Það var þó ekkert hneykslanlegt, en í hvert skipti sem einhver var nakinn horfði ég alltaf á gömlu konuna sem sat á fremsta bekk hinum megin við sviðið, til þess að sjá hver hennar viðbrögð yrðu. Hún var alveg svona grátt-hár-í-hnút-með-prjón-í-gegn gömul. Hún kippti sér hins vegar ekkert upp við þetta, til allrar hamingju.
Í heildina fannst mér íslensku leikararnir betri en þeir erlendu. Kannski eru það einhverjir tungumálaerfiðleikar eða eitthvað, en Gael Garcia Bernal karakterinn fannst mér pínulítið pirrandi til lengdar vegna sinna hikorða (why..what…you…i mean…this is…aahh). Það var eflaust hluti af því að hann átti alltaf að vera út úr reyktur, en mér fannst það bara ekki virka alveg nógu vel. Varð meira eins og alvöru hik.
Ég var mest að fíla Ólaf Darra og Nínu Dögg. Þau eru flott, hún tók þarna til dæmis mjög reiðan dans á einum tímapunkti. Ég fílaði dansinn.
Þunglamalegt taktleysi
febrúar 21, 2008 af valinkunnurandansmadurSundmaður: Jón Viðar Jónsson, leikhúsgagnrýnandi
Staður: Sundhöllin
Frumsýning
Einkunn: Hálf stjarna
Sýningin í hnotskurn: Handónýtt drasl
————————–
Það var mikil eftirvænting í loftinu þegar Jón Viðar bjó sig til að synda nokkur hundruð metra í Sundhöllinni nýlega. Fjölmargir gestir voru í Sundhöllinni þennan dag og biðu margir óþreyjufullir eftir sundtökum Jóns.
Skemmst er frá því að segja að áhorfendur urðu fyrir vonbrigðum. Taktleysið var algjört. Jón synti einhvers konar hálfgildingsskriðsund, enda notaði hann illa útfærðar skriðsundshreyfingar til að knýja sig áfram en náði þó ekki hraða bringusundsins. Þar að auki var skeytingarleysi hans gagnvart ofureinföldum umferðarreglum sundlauga algjört. Við grynnri enda laugarinnar er skýringarmynd sem gefur til kynna að hægri umferð sé á brautunum, menn skuli synda hring, en ekki fram og til baka sömu línu. Þetta er eðlilegt því annars væri laug sem er u.þ.b. 300 fermetrar að flatarmáli einungis gerð fyrir um sex manns.
Engin leið var að synda í lauginni fyrir þessum sundmanni. Ég hafði borgað mig inn fyrir heilar 250 krónur, m.v. eina komu á 10 komu korti sem kostar 2.500 krónur. Sýningin var ekki þess virði. Sundhöllin verður að bjóða upp á betri sýningar, vilji hún kalla sig háborg sundmenningar á Íslandi.