Fyrirvari um ábyrgð
Þetta blogg er arftaki eldra bloggs sem var valinkunnurandansmadur.blogspot.com sem var stofnað árið 2002. Síðan er ætluð til afþreyingar og yndisauka fyrir hinn valinkunna andans mann sjálfan, kunningja hans, ættingja og vini – en einnig til óhagræðis og smánar fyrir þá sem hann kann að gera óvægnar og óréttlætanlegar árásir á úr launsátri.
Engin ábyrgð er tekin á skrifum sem berast í athugasemdakerfi síðunnar, enda væri það herfilegur fórnarkostnaður að ritskoða athugasemdirnar í nafni siðgæðisins. Við erum ekki í Kína hér, góurinn. Hins vegar kemur vel til greina að veita þeim sem eftir því leitar með rökstuddri skriflegri greinargerð aðstoð við að bera kennsl á þá sem skrifa athugasemdir inn á síðuna undir dulnefnum, svo sem með samanburði á IP-tölum.
Hinn valinkunni andans maður tekur ábyrgð á sínum eigin orðum með semingi en minnir lesendur þó á að þeim sem ekki líkar við skrifin er óskað þvasýrugigtar og nýrnasteina.