Póker er göfug íþrótt. Þar sem ég var að spila póker á netinu áðan fékk ég hæstu hönd sem möguleg er. Þ.e. konunglega litaröð í spaða. Mér þótti ég nokkuð góður, og lagði allt sem ég átti undir. Því miður var borðið ansi lítið hvað upphæðir varðar og einhverjir búnir að pakka. Einn var All in, en það var aðallega vegna þess að hann átti svo lítinn pening. Þegar ég lagði allt undir, þá pökkuðu allir. Eg græddi lítið sem ekkert á þessu. En hvað gat ég annað gert, verandi með hæstu mögulegu hönd?

Og að lokum þessi tilvitnun til þess að svekkja sig enn frekar:
“If you’ve ever wondered why you’ve never hit a Royal Flush, here’s why. Of the 2,598,960 possible hands you could get in a game of poker, only four are Royal Flushes (spades, clubs, hearts and diamonds). Do the math and that means that to realistically expect to hit a royal you’d have to play for eight hours a day, seven days a week for seven years. If you get one, relish the moment.”
Jæja strákar, ha?
apríl 2, 2008 klukkan 11:38 pm
Já, það eru ekki allir sem verða þess heiðurs aðnjótandi að fá slíka hönd nokkru sinni um ævina. Því ítreka ég aftur við þig, að enda þótt þú hafir ekki fengið mikinn gróða, þá geturðu strikað yfir ROYAL FLUSH á listanum þínum yfir hluti sem þú ætlar að gera um ævina – meira en flestir geta gert.
Það hefði hins vegar verið öllu meira svekkjandi ef þú hefðir verið að spila í Monte Carlo, Luxor eða Bellagio og hefðir farið ALL IN með $50,000,000.00,- og allir hefðu foldað. Gaman að því líka að þú varst kominn með þetta í turninu en ætli það sé ekki þess vegna sem enginn þorði.
apríl 3, 2008 klukkan 8:44 am
Þegar riverið er komið og svona há spil í borðinu hættir maður ekkert á neitt.
apríl 5, 2008 klukkan 9:27 pm
Hún er helvíti góð, þessi með fimmuparið.