Dönsk, steikt, söltuð svínafita

By valinkunnurandansmadur

Þórður Gunnarsson, hagfræðinemi og blaðamaður, sendi mér fyrir skemmstu danska delíkasíu með pósti. Ég náði í hana á pósthúsið áðan og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum. Hér er semsagt um að ræða eitthvað sem líkist í raun vestfirzkum harðfiski við fyrstu sýn, í svipuðum umbúðum o.s.frv. en er þegar nánar er að gáð svínafitustrimlar, saltaðir og steiktir. Þetta er hið mesta lostæti. Líkist því helst að vera kominn með pörusteik á snakkformi. Hámarkið í þróun hugvits mannsins? Mögulega.

6 svör to “Dönsk, steikt, söltuð svínafita”

  1. Þórður Gunnarsson segir:

    Danska, steikta, saltaða svínfitu á diskinn minn!

  2. Þorgeir segir:

    Þetta þykja mér fréttir. Ég verð að líta við sem fyrst hjá þér og bragða á þessu hnossgæti…

  3. Haukur Heiðar segir:

    Og ættu orðin “sem fyrst” að vera alger lykilorð í þessari fullyrðingu Þorgeirs, því ef ég þekki Önund rétt, þá verða dönsku, steiktu, söltuðu svínafitustrimlarnir uppurnir á örskömmum tíma!

  4. valinkunnurandansmadur segir:

    Ég er búinn með þá Þorgeir, sorrí.

  5. hildigunnur segir:

    þetta fæst oft í Júróprís :D

  6. Þorgeir segir:

    Andskotinn, þarf ég virkilega að fara í Júróprís, geturðu ekki bara beðið vin þinn að senda þér meira…?

Skildu eftir svar