Við MDN gengum á þetta fjall á laugardaginn. Ótrúlega gott veður, ótrúlegt útsýni. Það er svosem ekki mikið meira um þetta að segja, nema hvað þetta fjall verður að teljast mjög útsýni/erfiði hagkvæmt til uppgöngu. Þetta er stapi, en ofan á honum er lítið vatn, eins og ofan í hálfgerðum gíg. Samtals var þetta um þriggja tíma ganga, upp, hringinn í kringum vatnið og niður aftur. Snjór var töluvert mikill og þurfti sums staðar að klofa hann upp fyrir hné, enda völdum við okkur vel bratta hlíð til að fara upp, en ekki hina aflíðandi suðurhlíð.
Svo var það heldur ekki leiðinlegt að renna sér á rassinum niður hlíðarnar á bakaleiðinni. Útsýnið var frábært. Þarna sameinar maður útsýni yfir Þingvallavatn, eiginlega allt Sogið, Ingólfsfjall, Hengilinn og hið krumpaða umhverfi hans, Botnssúlur, Skjaldbreiði, Lyndgalsheiði, Laugarvatn og restina af hinum sunnlenska fjallahring: Hekla, Tindfjöll, Þríhyrningur og Eyjafjallajökull. Allt var hulið snjó. Það glitraði allt. Hafið, árnar og jörðin.
Við tókum nokkrar myndir, með síma MDN, en enn á eftir að ná þeim út vegna tæknilegra örðugleika. Von er á birtingu þeirra hér.
mars 11, 2008 klukkan 2:34 pm
Tetta hljomar mjog vel. Hann Helgi hennar Onnu var einmitt lika i einhverri fjallaferd tennan sama dag og tu og taladi um otrulegt utsyni i tessu fallega vedri. Eg hlakka til ad ganga med ter i sumar, tott MDN se an efa godur ferdafelagi lika.