Það var skemmtilegt að vera viðstaddur undirritun kjarasamninga um níuleytið á sunnudagskvöldið. Það var greinilegt að þeir sem þarna voru höfðu unnið mikið undanfarnar vikur, því þeim var svo greinilega létt eftir undirskriftirnar. Karphúsið virðist vera griðland miðaldra karla, enda voru eflaust hundrað karlar um fimmtugt þarna en kannski á annan tug kvenna, ef ég ætti að giska.
Þegar ég kom inn var Sjónvarpið tilbúið með Vilhjálm og Grétar í viðtal, en svo óheppilega vildi til að netþjónn, eða einhver slík græja, hjá sjónvarpinu hrundi. Á meðan tæknimenn sinntu viðgerðum var því ,,Afsakið hlé” á ríkissjónvarpinu þegar fréttir áttu að vera hafnar. Fólkið í Karpúsinu hópaðist að sjónvarpinu til þess að fylgjast með og sneru baki í þá Grétar og Vilhjálm. Þegar útsending var að hefjast sagði einhver, sem taldi sig ekki heyra nógu vel ,,hækkiði í sjónvarpinu þarna!” Sennilega eitt skýrasta dæmi um máltækið að leita langt yfir skammt. Hann vildi hækka í sjónvarpinu til að heyra í manninum sem stóð við hliðina á honum. Sjónvarpsmenn tóku þó fyrir hækkunina, enda hefði það skapað óheppileg áhrif.
Við undirskrift ætluðu menn sér að vera voðalega hófstilltir og taka bara þéttingsfast í hönd hvers annars, en framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins fannst meiri fögnuður við hæfi. Hann tók hvern verkalýðsforkólfinn á fætur öðrum og kreisti þá og klappaði þeim fast á bakið og þakkaði innilega fyrir sig. Þá var eins og losnaði um hjá þessum hörkutólum og menn féllust í faðma í hrönnum. Stór maður sást taka annan minni í fang sér og segja ,,komdu hérna, þú skuldar mér koss, helvítis asninn þinn.” Þeir hafa eflaust rifist um eitthvað í ferlinu öllu saman. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins lagðist upp á borð fyrir myndatöku.
Fólk sem hefur áhuga á að léttast geri eftirfarandi:
Morgunmatur: Hafragrautur með soyamjólk í morgunmat. Enginn sykur út á. 1,5 dl. af haframjöli er nægilegt fyrir einn.
Hádegismatur: Salatbar eða ávextir. Sleppa sósum í salatbarnum. Ef um er að ræða ávexti er viðmiðið t.d. að niðurskornir og afhýddir breiði ávextirnir úr sér yfir stóran matardisk. Þetta getur verið eitt epli, tvær mandarínu, eitt kiwi og ein pera. Til dæmis.
Kaffitími: Ávextir eða hrökkbrauð (Korni, þunnt, úr humlum t.d., eða Finn Crisp) með mygluosti. Te.
Kvöldmatur: Fá sér mjög vel á diskinn, en bara einu sinni. Grunnreglan er: Engar franskar kartöflur (helst bara engar kartöflur yfirleitt), ekkert ruslfæði. Vatn að drekka með.
Sælgætis og sykraðra gosdrykkja skal ekki neyta. Ásamt hóflegri hreyfingu leiðir mataræði sem þetta til megrunar. Þetta er auðvitað bara ein af mörgþúsund aðferðum til að léttast, sem virkar þó, rétt eins og allar hinar. Nú er bara að ákveða hvað kúrinn á að heita?
Einhverjar hugmyndir?
febrúar 19, 2008 klukkan 12:35 pm
Ögmundarkúrinn.
febrúar 19, 2008 klukkan 12:48 pm
Úff, ætlaði að koma með eitthvað fyndið, en get ekki toppað tillögu Ásdísar.
febrúar 19, 2008 klukkan 3:44 pm
Önnkins.
febrúar 19, 2008 klukkan 5:44 pm
Veitiggi.
febrúar 19, 2008 klukkan 5:47 pm
Nei, ég vil ekki að honum verði ruglað saman við Ásmundarkúrinn, sem er hin íslenska útgáfa Atkins.
Veriði frumleg, aumingjar.
febrúar 19, 2008 klukkan 8:30 pm
Sveltiskúrinn?
febrúar 19, 2008 klukkan 9:14 pm
Hvað meinarðu? Ertu að segja að ég haldi til í einhverjum skúr þar sem ég svelti sjálfan mig? Er það það sem þú ert að segja? Ertu að segja það? Þú ert að segja það. Og það er rangt. Hættu að segja það.
febrúar 20, 2008 klukkan 9:08 am
Mér líst gríðarlega vel á tillögu Ásdísar að kalla þetta Ögmundarkúrinn.
mars 10, 2008 klukkan 1:34 am
haframjölskúkur