Menn spyrja sig…

By valinkunnurandansmadur

…hvort var betra, lambaframparturinn í sveppasósunni, með ofurgóða salatinu og ástralska rauðvíninu á laugardaginn, eða nautasteikin með piparsósunni, leaning oak víninu sem við Una keyptum í Napa og ofurgóða salatinu í gær.

Þessu er vandsvarað. En þetta bliknar auðvitað allt í samanburði við grænmetisbuffið í vinnunni í dag.

5 svör to “Menn spyrja sig…”

  1. Una Sighvatsdóttir segir:

    Mmmmmm grænmetisbuff namminamm.

  2. Þorgeir Ragnarsson segir:

    Önni, þú ert grænmetisbuff, þú ert risavaxið ofurmenni, svona eins og “the green giant” þarna á dollunum með niðursoðnu baununum. Nú er bara spurningin hvort þessara heita verði notað á þig til frambúðar í stað gamla nafnsins (sem var auðvitað bara til trafala enda kemur það alltaf upp um ætterni þitt þegar þú þarft að leyna því…).

  3. Önundr segir:

    Ég hefi aldrei þurft að leyna því.

  4. Þorgeir Ragnarsson segir:

    Ég var að vonast eftir einhverri hnyttni í tilsvörum þínum.

  5. Una Sighvatsdóttir segir:

    Þegar ég var lítil var svona risastóra límmiðarúllu með græna risanum á baunadósunum inni í búri heima. Mér fannst hann frekar töff.

Skildu eftir svar