Öggi

By valinkunnurandansmadur

Maður sendir email. Pósturinn virkar þannig að viðtakandinn sér nafn manns í skilaboðalistanum hjá sér, eða netfangið sem sent er úr. Netfangið er samhljóða nafni manns. Maður ávarpar viðtakandann. Maður kemur erindinu á framfæri.  Maður skrifar undir:

Kveðja,
Önundur.

Viðtakandi svarar. Viðtakandi ávarpar mann:

Sæll,
Ögmundur.

Manni fallast hendur.

7 svör to “Öggi”

  1. Konráð segir:

    Sæll.

  2. valinkunnurandansmadur segir:

    Fínt.

  3. Guðrún Davíðs segir:

    Hva,,,kemur þetta nokkuð svo oft fyrir? Fyrir utan hvað mér finnst Ögmundur fara þér ágætlega.

    Þú ert þó allavega heppinn að heita ekki Daði. Það eru til samtök Daða á Íslandi sem berjast fyrir þeim mannréttindum að vera ekki alltaf ruglað við Davíð.

    g.

  4. valinkunnurandansmadur segir:

    Þú ert á topp 20 listanum yfir uppáhaldsfrænkur mínar. Ég trúi því ekki að þú ætlir að fara að snúast gegn mér í þessu máli.

  5. Ásdís Eir segir:

    Önundur, þú ert á topp 100 listanum yfir vini mína.

  6. Konráð segir:

    Ögmundur, þú ert á topp 5000 listanum yfir vini mína.

  7. Doddi segir:

    Ögmundur, þú ert að topp 100.000 listanum yfir fólk sem mér líkar þokkalega við.

Skildu eftir svar