Með á nótunum

By valinkunnurandansmadur

Leið moggabloggara til þess að vera gáfulegur er sú að segja það verða “fróðlegt og áhugavert að fylgjast með þróun mála á næstu dögum og vikum”.

Ef ég væri moggabloggari og fyndi mig knúinn til að blogga um morðið á Benazir Bhutto myndi ég skrifa:

Ég veit ekkert um pakistönsk stjórnmál.

Ég veit ekki hver drap Benazir Bhutto.

Ég veit ekki hvað gerist næst.

Ég veit ekki hvað er líklegast til þess að styrkja lýðræði í Pakistan.

Ég veit ekki hvort Benazir Bhutto var góður stjórnmálamaður eða slæmur.

Svo myndi ég enda þetta sem mjög gáfaður bloggari og ítreka mikilvægi þess að stjórnarfar í Pakistan haldist stöðugt, enda sé landið kjarnorkuveldi. Svo segði ég að það yrði áhugavert og fróðlegt að fylgjast með þróun mála á næstunni.

Skildu eftir svar