Rigningin bylur hér á þakinu. Úti er grátt. Það er 16. desember. Verða þetta rauð jól? Kannski ég fari bara til Anchorage um næstu jól og verði þar í almennilegum fílíng. Þar er í dag 8-16 stiga frost. Þar er það helsta í fréttum að maður var dæmdur fyrir kynferðislega misnotkun á einstaklingi undir lögaldri. Semsagt allt eins þar og hér, nema almennilegt frost þar en ekki hér.
desember 17, 2007 klukkan 2:07 pm
Hvenær kemur svo eiginlega vetur skv. þínu dagatali – ég get ekki betur séð en hér sé sama októbernepjan eins og alltaf…..sum sé, bara ennþá sumar?
desember 17, 2007 klukkan 10:13 pm
Rólegur, fyrst þarf að koma haust.
desember 18, 2007 klukkan 1:32 pm
Ég hef á tilfinningunni að þegar ég muni hitta þig haustið 2008 þá verðum við enn staddir á haustinu 2007 – sem byrjar samt ekki fyrr en eftir áramótin 2007/2008.
desember 18, 2007 klukkan 5:12 pm
Jú gif mí tú möts kredit sko. Ekki ræð ég árstíðunum á þessu landi. Ég er bara alltaf að bíða eftir því að þetta gegndarlausa sólskin og blíðviðri hætti (þó ég voni að það geri það ekki), en það bara heldur áfram.
Endalaust.