Sú hugmynd hefur komið upp…
By valinkunnurandansmadur
…að í janúar ferðist ég um Úkraínu, Rúmeníu, Ungverjaland, Tékkland, Pólland, Þýskaland og Danmörku.
Hvernig væri það?
This entry was posted on október 25, 2007 at 11:56 pm and is filed under Útivist og ferðalög. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed.
You can skip to the end and leave a response. Pinging is currently not allowed.
október 26, 2007 klukkan 12:28 am
Það er allavega kominn tími til að þú drullist til Danmerkur.
október 26, 2007 klukkan 1:13 am
Ja ekki hefur þú boðið mér með í öll þau hundruð skipta sem þú hefur farið þangað að hella í þig sýrópi og háma í þig súkkulaði.
október 26, 2007 klukkan 11:30 am
Það er þó betra að hún sé í matnum heldur en að þú sért kokkálaður.
október 26, 2007 klukkan 1:36 pm
Ojjjj veistu hvað er kalt í Þýskalandi í Janúar. Kuldinn keyrir í gegnum beinin…allavega í Norður Þýskalandi.
október 26, 2007 klukkan 2:01 pm
Hugmyndin var nú frekar sú að ég myndi keyra í gegnum kuldann.
október 26, 2007 klukkan 2:01 pm
Þeir sem mæla gegn hugmyndinni eru úrtölumenn og afturhaldskommatittir.
október 27, 2007 klukkan 3:16 am
Jah, eigi vil ég úrtölumaður og afturhaldskommatittur vera. Ég mæli því eindregið með þessari hugmynd og finnst hún afar góð. Hver hefur ekki komið til Danmerkur samt??
október 27, 2007 klukkan 8:42 am
mér finnst þetta alveg sérdeilis prýðileg hugmynd! og engin ástæða til að láta kulda letja sig. í fyrra var t.d. bara ekkert kalt hérna í norðuraustur-þýskalandi (er sjálfsagt misjafnt eftir stöðum í norður-þýskalandi, já og árum) og varla að væri ástæða til að nota ullarföðurlandið, hvað þá að hægt væri að fara á skíði og kuldinn er nú ekkert mikið meira nístandi en á íslenska hálendinu…
október 27, 2007 klukkan 2:57 pm
Ég hef nú reyndar ekki lagt það mikið í vana minn að vera uppi á íslenska hálendinu í janúar…
nóvember 2, 2007 klukkan 10:36 pm
Sæll
Ég kíkti stutt við í Kiev og Budapest í sumar. Budapest var helst til Vestur-Evrópuleg fyrir minn smekk en í Kíev er hreinlega eins og maður sé kominn aftur til Sovjetríkjanna. Nóg af tilkomumiklum torgum og sósíalískum skriðmótablokkum. Skoðunarferð til Tsjernobyl er heldur ekkert sem maður gleymir auðveldlega.
Færsla um Kiev, ef þú hefur áhuga:
http://kaffisterkt.blogspot.com/2007/08/kyiv-25.html
og Tsjernobyl:
http://kaffisterkt.blogspot.com/2007/08/vekjaraklukkan-hringdi-stundvslega.html
hvorugt ber að taka of alvarlega, góða ferð.