Samtíningur

By valinkunnurandansmadur

Ég las það á glæru eftir danskan afbrotafræðing að 0,714% Bandaríkjamanna sitji nú í fangelsi. Það gerir um 2,16 milljónir manna. Þarna erum við að tala um töluvert magn réttlætis.

Ég heyrði borgarstjóra segja í Kastljósinu eitthvað á þá leið að “við erum ekki að selja neina þekkingu út úr Orkuveitunni” Í kjölfarið fylgdi sú spurning í hverju hið 10 milljarða verðmæti lægi þá og svarið var “Nú bara í þeirri þekkingu og…” og svo taldi hann upp sitthvað fleira. Ekki að þetta hafi skipt höfuðmáli, en – góður.

Ég heyrði í útvarpinu lag eftir Rúnar Júlíusson, að ég held. Ein ljóðlínan í þessu rokkaða lagi var svona: “ÞAÐ STENDUR HVERGI SKRIFAÐ Á BÓK HVERNIG LÍFINU HÁTTAÐ SKAL.” Ég tel ríka ástæðu til að gera alvarlegar athugasemdir við þessa fullyrðingu og draga sannleiksgildi hennar í efa. Mætti til dæmis nefna tvö höfuðrit: Líkami fyrir lífið og Biblían.

Ein ummæli to “Samtíningur”

  1. Ómar Sigurvin segir:

    Ég vil fleiri færslur um líkamsvessa!!
    Já eða prump og þarmaloft eins og á blogginu hjá kærustunni þinni ;)

Skildu eftir svar