Sjúkdómsgreining

By valinkunnurandansmadur

Undanfarnar vikur hef ég hóstað eins og dvergurinn í myndbandinu sem ég birti hér fyrir rúmum mánuði síðan. Ástandið hefur síst farið skánandi síðustu daga og nú í dag dreif ég mig á Heilsugæsluna í Garðabæ. Þar fékk ég staðfestingu menntaðs einstaklings á minni eigin sjúkdómsgreiningu. Ég er með lungnabólgu.

Ég man ekki til þess að hafa fengið lungnabólgu áður. Þegar ég kom heim tók Una á móti mér og sagði glaðhlakkalega: “Ef þú væri með HIV myndir þú bara deyja! Haha!” En ég er ekki með HIV. Ég er kominn á fúkkalyf til einnar viku og get ekki farið á landsleikinn á morgun eins og til stóð.

————————-

Bloggþorstinn hefur annars verið hverfandi undanfarið. Nokkrum sinnum hefur bloggari sest niður og ætlað að tjá sig eitthvað, en jafnóðum strokað allt út og hætt við. Svona er þetta stundum. Ef ég á að gera upp sumarið í nokkrum orðum þá er það svona:

Skemmtilegt, fróðlegt, veðursælt, hamingjusamt.

Ein ummæli to “Sjúkdómsgreining”

  1. bjarnheidur segir:

    góðan bata!

Skildu eftir svar