Stiklað á stóru

By valinkunnurandansmadur

Það er skrýtið þegar miklir spekingar kunna ekki samræðulist. Það lætur þá stundum líta út fyrir að vera algjörir bjánar. Það er líka skrýtið þegar fólk kann mannkynssöguna utan að en áttar sig ekki á einföldum og almennum kurteisisreglum í mannlegum samskiptum.

Ég er að hugsa um að ganga á Botnssúlur á mánudaginn. Áhugasamir hafi samband.

Sá umræður á malefnin.com um frétt sem ég skrifaði um Mývatn. Þar er ég ásakaður um að vera áróðursblaðamaður af versta tagi. Það finnst mér stórkostlega fyndið. Í umræðunum tekst einhverjum netverja meira að segja að túlka fréttina sem argasta áróður, nema bara í þveröfuga átt við málshefjanda. Það gæti bent til þess að fréttin hafi verið nokkuð ballanseruð…

Hóran sem settist í hásæti Danadrottningar og tók af sér nektarmyndasyrpu fær heiðursverðlaun vikunnar.

7 svör to “Stiklað á stóru”

  1. Trausti segir:

    Ég skil fyrr en skellur í tönnum.

  2. Konráð segir:

    Já, ég tek þetta til mín líka.

  3. Önundr segir:

    Ég átti við hvorugan ykkar og reyndar engan sem les þetta blogg.

  4. Bjarnheidur segir:

    Mig langar á Botnssúlur, hvenær leggið þið af stað?

  5. Önundr segir:

    Miðað við veðurspá verður rigning á morgun. Í slíku veðri er syðstasúla yfirleitt uppi í skýjunum. þá er lítill tilgangur í þessu.

  6. Önundr segir:

    ekki var farið á botnssúlur.

  7. Bjarnheidur segir:

    grunaði það… svo ég las góða bók og eldaði indverskan mat í svona þrjá tíma… það var hressandi :)

Skildu eftir svar