Friðbjörn Orri Ketilsson hæðist að foreldrum Madeleine McCann í nýlegri færslu á blogginu sínu. Hann tiltekur þar þrjá möguleika sem hann telur að séu í stöðunni, en gleymir einum. Það er möguleikinn á því að ræningi/ræningjar stelpunnar ætli að halda henni fanginni. Natascha Kampusch fékk að upplifa það, en Wolfgang Priklopil, hélt henni fanginni í átta ár í kjallaranum heima hjá sér, þangað til hún slapp frá honum í ágúst í fyrra.
Samkvæmt rökfærslu Friðbjarnar Orra var það rangt af foreldrum Madeleine að reyna að höfða til mannlegra kennda í ræningjanum, sem ekki er vitað hvað ætlaði sér með stúlkuna, því það gæti haft neikvæð áhrif á getu hans til þess að stunda viðskipti með hana. Friðbjörn Orri klikkir svo út með smá kaldhæðni í lokin og stillir þar foreldrum Madeleine upp sem vonda fólkinu í málinu og gerir lítið úr því sem þau hafa mátt þola, en þau vita ekki hvort barninu þeirra er haldið föngnu, það komið í þrældóm hinum megin á hnettinum eða búið að nauðga því og myrða það:
“Flott hjá þessum foreldrum.
Þeir hljóta að vera ánægðir með þessa sumarrispu sína.”
júlí 18, 2007 klukkan 11:37 am
Þá má ekki gleyma öðrum möguleikum í stöðunni sem barátta foreldranna kynni að leiða til.
Í fyrsta lagi gæti einhver, í kjölfar þrotlausrar baráttu foreldra og annarra, borið kennsl á stúlkuna í höndum ræningjanna og gert lögreglu viðvart. Í öðru lagi gætu ræningjarnir ákveðið að skila henni til baka án þess að koma upp um sjálfa sig til þess að losa aðeins um þá stöðu sem þeir eru e.t.v. í.
Að lokum er rétt að leiða hugann að því hvaða almennu áhrif til lengri tíma aðferðarfræði Friðbjörns myndi leiða til. Hvaða áhrif hefði það á þá sem leiða hugann að því að ræna börnum ef þeir vissu að viðbrögðin yrðu nánast engin til þess að trufla ekki viðskipti með viðkomandi manneskju? Slík viðbrögð (eða viðbragðaleysi) yrðu væntanlega ekki til þess fallið að fækka slíkum glæpum.
júlí 19, 2007 klukkan 2:43 pm
Punkturinn er sá að það er hvorki mögulegt né nauðsynlegt að færa rök fyrir frjálsum viðskiptum í öllum hugsanlegum tilfellum. Það er ekki hægt að sjá neinn annan tilgang með færslu hans.