Þessi mótorhjólaumræða er einhvern veginn alltaf eins. Fyrst segja allir að mótorhjólamenn séu vondir. Svo er talað við ranga mótorhjólamenn (þessa á chopperunum) sem koma málinu ekkert við. Þeir segja: “Hey, við erum nú ekki allir svona vondir.” Svo er það búið. En fíflin á racer-hjólunum halda alltaf áfram að keyra eins og bjánar.
Einnig virðist þetta alltaf bara snúast um hraðann, en auðvitað ætti þetta líka að snúast um það hvernig þeir fara ekki eftir neinum reglum að því er virðist. Fara yfir á rauðu, virða ekki biðskyldu, fara á milli bíla á ljósum og framfyrir og svo framvegis
júlí 3, 2007 klukkan 10:51 pm
Í sumum málum staðfestast “fordómar” manns rækilega. Þetta mál er af því sauðahúsi. Ég fullyrði að í hvert einasta skipti sem ég sé bifjólamann á slíku tæki í umferðinni þá brýtur hann einhverjar reglur. Gæti hugsast að ákveðnir karakterar laðist að mótórhjólum (racerum) einmitt vegna þess að á þeim er hægt að keyra hraðar en á öðrum ökutækjum, stinga lögguna af og þar með brjóta líka allar aðrar reglur? Skyldi það nokkuð vera?
febrúar 13, 2008 klukkan 3:57 pm
Fyrirgefðu en hvað er að því að fara milli bíla á ljósum. Svona fordómaskrif eru ekki nokkrum bifhjólamanni bjóðandi. Ef þú átt eitthvað erfitt að vera meðal mótorhjólamanna ættir þú að fá þér bíl. Að öðrum kosti lærðu að bera virðingu fyrir þínum meðbræðrum. Ég var á racer en er kominn á löggu-Harley með hörðumtöskum, talstöð,cd og fl. og eina ástæðan fyrir því að ég ek ekki meðfram bílum er að hjólið er of breitt fyrir það. Ein af ástæðum fyrir að menn fá sér mótorhjól er hvað auðvelt er að komast áfram í umferðinni og þá meina ég að komast áfram milli bíla í stað þess að sitja í einhverri umferðarteppunni og menga umhverfið.