Hlaup IV

By valinkunnurandansmadur

Hlaup hafa nokkuð tafist vegna almenns skemmtanahalds og vinnu. Í þetta skipti var flugvallarhringur hlaupinn öðru sinni en dálítið lengri leið þó. Nú skreið þetta rétt upp fyrir 8 kílómetra.

Hlaupahringur 7

Mynd 1. Hafist er fóta við Freyjugötu 25B. Hlaupið er Haðarstíg, Nönnugötu, Njarðargötu út að flugvelli, Suðurgötu, Ægisíðu, Flugvallarveg, Bústaðaveg, Miklubraut, yfir göngubrautina við Tanngarð, upp á Gömlu-Hringbraut, Barónsstíg, Mímisveg, Sjafnargötu, Njarðargötu, Freyjugötu.

4 svör to “Hlaup IV”

  1. Urðarköttur segir:

    Þessar lengdarupplýsingar eru einskis virði nema meðfylgjandi séu tímamælingar.

  2. valinkunnurandansmadur segir:

    Haltu kjafti fíflið þitt.

  3. valinkunnurandansmadur segir:

    Djók, maður.

  4. Hafsteinn Þór segir:

    Shit.
    Mig grunar að þú munir ekki linna látum fyrr en þetta götukort þitt er búið að þenjast út í heilt Íslandskort.

    Spái því að á sama tíma á næsta ári munir þú vera gaurinn sem fetar í fótspor Reynis Péturs og Sveppa og munir elta Bylgjulestina um landið á tveimur jafnfljótum.

    Hversu ógeðslega cool sumarfrí væri það annars að fylgja Bylgjulestinni um landið og þyggja frostpinna í hverju plássi?
    HH

Skildu eftir svar