Jæja. Ekkert lát er á hlaupum. Ég var ávíttur harðlega fyrir að fá mér risavaxna og viðurbjóðslega kökusneið í vinnunni í dag. Ég lét mér það að kenningu verða og át einungis létt kjúklingasalat og ávexti í kvöldmat, ásamt brauði er innihélt engan unninn sykur, meira að segja bara engan sykur. Gott brauð. En hringurinn var semsagt lengdur og fór nú í rétt um 7500 metra. Talnaglöggir sjá í hendi sér að það eru um 7,5 kílómetrar. Í þetta skipti var líka ekkert gefist upp í brekkunni. Hún var hlaupin.

Mynd 1. Hafist er fóta við Freyjugötu 25B og farið Freyjugötu, Barónsstíg, Eiríksgötu, Snorrabraut, Bústaðaveg, Flugvallarveg, Ægisíðu (stíginn), Suðurgötu, Hringbraut, gegnum Hljómskálagarðinn, Bragagötu, Freyjugötu. Athugið að myndin hefur verið klippt saman úr tveimur kortum og vegalengdirnar af þeim lagðar saman í u.þ.b. 7500 metra.
júní 16, 2007 klukkan 12:41 am
Það hefur verið töluvert púl að raða þessum myndum saman
júní 16, 2007 klukkan 12:47 am
Ég er geðveikt ánægð með þig.
júní 16, 2007 klukkan 3:48 am
Já, ég myndi hiklaust segja að það hafi verið mesta púlið í öllu ferlinu að búa til kortið.
júní 16, 2007 klukkan 8:10 am
Djöfull ertu öflugur. Það verður æsispennandi að sjá hvernig þetta endar allt saman.
júní 16, 2007 klukkan 4:24 pm
Ég vil vekja athygli á því að kortið skal ekki notast sem heimild til graftar.
júní 18, 2007 klukkan 1:27 am
Frábært hjá þér Önni. Flott hvernig þér hefur tekist að mynda útlínur Texas ríkis í Bandaríkjunum með hlaupaleiðinni. Meira af þessu!
júní 19, 2007 klukkan 8:24 am
Þú ert efnilegur skokkari! Ég fann meira að segja hlaupafélaga inni á kortinu, neðst í vinstra horninu, en þegar horft er ofaná götuskipulagið sést mynda fyrir manni sem stendur við borð. Hann er fínn hlaupafélagi að ég held og heitir Loftur.
thí, hí….
júní 19, 2007 klukkan 11:23 am
Já ég tók einmitt eftir þessu líka, Skerjagarðshverfið er svolítið spes séð ofan frá. Mér finnst þetta vera eins og maður sem er með annan handlegginn á kafi ofan í ruslafötu. Eða þá að hann sé að halla sér fram á ræðupúlt.
júní 19, 2007 klukkan 11:24 am
Æji bööö það var ég sem átti síðasta komment