Hlaup II

By valinkunnurandansmadur

Hér er nýjasti hringurinn, náði ekki alveg að klára. Gekk svona 300 metra í lokin. En þetta er semsagt komið í ca. 6 kílómetra. Þetta litla útskot þarna hjá gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar er auðvitað hringurinn sem göngubrúin leiðir mann. Jájá, það skal engu sleppt úr þessari mælingu.

Hlaupahringur 4


Mynd 1. Hafist er fóta við Freyjugötu 25B. Farið er Freyjugötu, Barónsstíg, Egilsgötu, Flókagötu, Skaftahlíð, Miklubraut, Gömlu-Hringbraut, yfir Hringbraut á göngubrú og eftir göngustíg að Sæmundargötu, Sæmundargötu út fyrir HÍ, Suðurgötu, Hringbraut, gegnum Hljómskálagarð, Bragagötu, Freyjugötu.

5 svör to “Hlaup II”

  1. Trausti segir:

    Við gætum hist á brúni. Gefið fæf þegar við mætumst.

  2. Önundr segir:

    Eins og presturinn sagði: Hugmyndin er góð.

  3. Hafsteinn Þór Hauksson segir:

    Af hverju myndar þú ekki eitthvað töff tákn með hlaupaleiðinni. Þú gætir t.d. myndað merkið sem listamaðurinn sem áður var þekktur sem Prince notaði um tíma.

  4. bjoddi segir:

    já þetta er flottur árangur Önni , við skulum vita það einnig og vera meðvitaðari um hvernig á að auka þolþjálfun til langhlaups , hún er æði einföld og þú eflaust kannt hana , að auka sprengikraft er góð aðferð til að brjóta upp æfingamynstur og þar af leiðandi ná að “sjokkera” líkamann svo hann ekki staðni þaes þolið. Gott er að gera þessa æfingu með , ekki svo galið að taka hana í lok hlaups, aðferðafræðin kannast margir við , “súasæt” hver man ekki eftir þeirri geðveiki úr skólaleikfimi ??? taka 4 mislanga spretti 2-3 x. prufaðu og sjáðu til .

    þetta setti ég inn svona af gamni mínu , veit um góðar raunir af þessu líku með það að bæta þol.

    þetta ererfitt en því betur líður manni á eftir .

    ´kv
    Björn Þór

  5. valinkunnurandansmadur segir:

    Ert þú semsagt að segja Hafsteinn, að þetta sé ekki eitthvað flott form sem ég hef myndað með hlaupum mínum? Það eru bara ekkert allir flinkir að teikna. Af hverju getur þú aldrei verið ánægður með neitt sem ég geri?

Skildu eftir svar