Ég mun lesa bók að heimili mínu, annað kvöld á milli kl. 21.00 og 23.00
Áhugasömum er velkomið að koma og horfa á mig lesa bókina, en verið mætt snemma ef þið viljið vera örugg um að fá sæti.
Aðgangseyrir er vægur: 300 ISK.
Ég mun lesa bók að heimili mínu, annað kvöld á milli kl. 21.00 og 23.00
Áhugasömum er velkomið að koma og horfa á mig lesa bókina, en verið mætt snemma ef þið viljið vera örugg um að fá sæti.
Aðgangseyrir er vægur: 300 ISK.
maí 4, 2007 klukkan 12:25 am
Ég mæti
maí 4, 2007 klukkan 7:57 am
Vá takk fyrir að bjóða okkur. Ég reyni að mæta snemma, en kemst sennilega ekki fyrr en akkúrat 21:00. Ertu ekki með póstlista eða eitthvað í gangi til að auglýsa svona atburði?
maí 4, 2007 klukkan 9:00 am
Ég kem líka, hlakka til :)
maí 4, 2007 klukkan 2:52 pm
Mundu bara að þú þarft ekki að segja “komma” og “punktur” í hvert sinn sem þau tákn koma fyrir í textanum. Þá verður þetta skemmtilegra fyrir áheyrendurna.
maí 4, 2007 klukkan 2:53 pm
…og ef þú lest beina tilvitnun þá verður þú að segja í lok hennar: “tilvitnu lýkur”, jafnvel þó það standi ekkert um slíkt í textanum.
maí 4, 2007 klukkan 2:55 pm
Ég banna að gert verði grín innsláttarvillunni hér að ofan (og líka að nokkur geri grín að mér vegna hennar, ég þekki Helga, persónulega trúbadorinn).
maí 4, 2007 klukkan 3:37 pm
Ég get ekki tekið ákvörðun fyrr en ég veit hvaða bókmenntaverk þú ert að fara að túlka. Mér hefur alltaf fundist þú vera fyrst og fremst gamanlesari.
maí 4, 2007 klukkan 9:26 pm
FOKK ÉG MISSTI AF ÞESSU. Hvenær verður næsta lestrarsessjón?
maí 5, 2007 klukkan 8:48 am
Ég verð á fjórðu hæð bókhlöðunnar á milli klukkan 10.00 og 16.45 í dag.
Þar mun ég lesa bókina Asking Questions – The Definitive Guide to Questionnaire Design – For Market Research, Political Polls, and Social and Health Questionnaires eftir Norman Bradburn, Seymour Sudman og Brian Wansink.
maí 7, 2007 klukkan 6:18 am
Lestu upphátt eða horfa allir á þig lesa í hljóði og fylgjast með svipbrigðunum?
maí 7, 2007 klukkan 4:35 pm
Já.