Íslensk úrvalsævintýri

By valinkunnurandansmadur

WC-lesningin þessa dagana eru íslensk úrvalsævintýri. Í gær las ég ævintýri um kerlingu sem át allar smjörbirgðir heimilisins frá karli sínum. Þegar upp komst um verknaðinn laug hún því að manninum að fluga hefði étið smjörið. Lokaði karlinn þá húsinu og gekk berserksgang þar inni. Endaði sagan svo með því að kerlingin barði karlinn af alefni í andlitið með sleggju, að hans beiðni.

5 svör to “Íslensk úrvalsævintýri”

  1. Una Sighvatsdóttir segir:

    Vá, ég var að blogga nánast nákvæmlega sömu færslu án þess að hafa séð að þú bloggaðir þetta fyrst. Hressandi

  2. Ómar Sigurvin segir:

    Mér finnst þetta nú lykta af samráði…spurning um að senda gögnin til Ríkislögreglustjóra, eða nei, kannski bara fá hann til að gera gagnslausa húsleit hjá ykkur…

  3. hanna rut segir:

    hahaha…. þið eruð sæt :)

  4. Hafsteinn segir:

    Ég er bara mjög sáttur fyrir þeirra hönd ef “WC- lesningin” lyktar bara af samráði.

    Hafsteinn

  5. Önundr segir:

    Og blómalykt auðvitað.

Skildu eftir svar