Hvað er að gerast?

By valinkunnurandansmadur

Nú í hádeginu kveikti ég á sjónvarpinu til þess að sjá hádegisfréttirnar á Stöð 2 og Silfrið. Sagði Una þá að ég væri alveg eins og pabbi minn, alltaf hlustandi á fréttir.  Því næst hellti ég Kellogg’s Special K í skál og hugðist snæða það. Mælti hún þá: “Af hverju seturðu svona mikið í skálina? Þú verður að passa að mjólkin fari ekki öll út fyrir þegar þú hellir henni yfir.” Hafði ég þá á orði að hún einnig líktist einhverjum af eldri kynslóð.

5 svör to “Hvað er að gerast?”

  1. Ásdís Eir segir:

    Hahaha, þið eruð svo kjút.

  2. Konráð segir:

    Ég skil.

  3. Una Sighvatsdóttir segir:

    Sko mig langaði nú bara til að lesa sunnudagsmoggann minn í friði fyrir látunum í hádegisfréttum stöðvar 2.

  4. Doddi segir:

    Úff.

  5. Ómar Sigurvin segir:

    Una sleppti greinilega móðurstiginu og fór beint í ömmustigið ;)

Skildu eftir svar