Rúnturinn, Ómar Ragnarsson, Kaffitár, Margrét Sverrisdóttir

By valinkunnurandansmadur

Menn keppast nú við að úthúða Ómari Ragnarssyni fyrir hugmynd hans um að endurvekja rúntinn í Reykjavík. Hugmyndin finnst mér persónulega ekkert sérlega góð, en menn eru kannski að gera aðeins of mikið úr mótsögninni, að náttúruverndarsinninn skuli hvetja til aukins útblásturs. Í fyrsta lagi lagði hann til að rúntinum yrði breytt til fyrra horfs svo að hann yrði meira orginal og menn gætu keyrt í tvístefnu á honum, ekki bara einstefnu eins og hann er í dag. Heldur fólk að það sé enginn rúntur í borginni í dag? Það er auðvitað rúntur niður Laugaveginn, Bankastrætið og Austurstrætið niður á Ingólfstorg, í kringum það og svo Hafnarstrætið til baka. Munurinn yrði sennilega hverfandi.

Núllar þessi hugmynd semsagt út baráttu Ómars gegn mörghundruðþúsundtonna álverum og milljarðalítra uppistöðulónum? Er hann bara í bullandi mótsögn og búinn að skjóta sig í fótinn? Varla. Það var þá allavega ekki stór byssa sem hann skaut sig með.

Ég er hins vegar ósammála þessum hugmyndum hans af aðeins praktískari ástæðum. Svona rúntur er fyrir hendi í mörgum smærri bæjarfélögum úti á landi og virkar þar ágætlega. Þar mætast menn á rúntinum, (t.d. á Akranesi) og spjalla saman. Þar búa hins vegar aðeins nokkur þúsund manns. Ég held einhvern veginn, ef ég á að segja eins og er að stemningin hér verði meira þannig að maður sitji í bílnum sínum með eitthvað bláókunnugt fólk á hinni akreininni, alveg ofan í manni. Það verði minna um spjall og meira um að menn reki speglana hver í annan og fari svo að slást. Nóg af klikkuðu liði í bænum um helgar. Auk þess held ég að Austurstrætið verði ekki lengur staður fyrir gangandi vegfarendur því vegurinn þarf auðvitað að verða helmingi breiðari. Það er líka til trafala á daginn þegar engin bílastæði verður að fá í Austurstrætinu.

———————————–

Að öðru. Kaffitár rekur matsölu í Þjóðminjasafninu þar sem ég sæki tíma. Verðlag þar er algjörlega fáránlegt. Ég hafði ekki tíma til að borða morgunmat í morgun því ég vaknaði helst til seint og var því að sálast úr hungri. Því var ég tilneyddur að versla þar.

Nú geri ég mér grein fyrir því að þetta er voða fínt, og þessi kaffistofa er eðlilega aðeins dýrari en aðrar því þangað kemur mikið af gestum safnsins sem eru til í að gera vel við sig eftir skemmtilega skoðunarferð um safnið. Þetta er ekki “eatery” þar sem hópar manna í hádegismat koma og hakka í sig hamborgara og franskar. Ég er heldur ekki að segja að menn megi ekki verðleggja vörur eins og þeim sýnist. Ég er að furða mig á því að fólk sjái sér fært að versla við staðinn.

Þarna keypti ég Sól safa, að ég held 200ml, sem kostaði 240 krónur. Það er svívirðilegt. Ef við lítum á lítersflöskuna í Bónus af sama safa sem kostar um 150 krónur og gerum ráð fyrir að hún sér þar á 40% álagningu, má skjóta gróft og hóflega áætlað á um 700% álagningu hjá Kaffitári. En þá reyndar geri ég ekki ráð fyrir að hinar minni umbúðir auki lítaverðið eitthvað. Verum sanngjörn, segjum 680% álagning.

Einnig keypti ég lítið Baguette brauð með skinku og osti. Það var sko ekkert gourmet-neitt, frekar þurrt og ekkert á því. Það var líka mjög smátt í sniðum. Samanlagt borgaði ég fyrir þessi tvö ítem, um 650 krónur, man ekki nákvæmlega hvað það var mikið. Ég segi bara “sjitt”.

—————————

Margréti Sverrisdóttur er tíðrætt um hugsjónir sínar. Það hefur einhvern veginn alveg farið framhjá mér fyrir hvað hún stendur. Auðvitað get ég einungis kennt sjálfum mér um það. En hún ætti að skella sér í kynningarátak til þess að ná til hinna tregari kjósenda, eins og mín.

11 svör to “Rúnturinn, Ómar Ragnarsson, Kaffitár, Margrét Sverrisdóttir”

  1. Konráð segir:

    Voðalega bloggarðu langt. Ég nenni ekkert að lesa þetta.

  2. Önundr segir:

    Djöfull nenni ég ekki að lesa svona löng komment við bloggið mitt.

  3. Anna segir:

    Kaffitár er því miður alveg ofboðslega dýrt kaffihús. Veitingarnar finnst mér ekkert sérstaklega spennandi og sleppi því oftast að kaupa mér eitthvað með kaffinu en kaffið eitt er heldur ekkert ódýrt. Núna er líka búið að hækka verðið því allar birgðir eru búnar að hækka. Núna kostar latte 340 kr. en þegar ég var í þriðja bekk í MR kostaði hann 280 kr. Þetta er svona.. maður heldur samt áfram að kaupa kaffið þarna því það fæst varla betra… Auðginnta ég.

  4. Una Sighvatsdóttir segir:

    Ég er sammála, mér finnst það heldur veik og ómerkileg rök að ætla að kalla Ómar hræsnara í umhverfismálum vegna þessa. Ekki get ég séð að breikkun Austurstrætis muni valda aukningu í bílaeign landans.

    En þrátt fyrir að mér finnist þetta fólk vera að rembast við að finna eitthvað til að rægja Ómar, þá er ég samt sammála því að þetta er ekki góð hugmynd hjá honum. Ég vil frekar hafa Laugaveg og Austurstræti göngugötu, og held það sé nú hægt að finna betri leiðir en þessa til að styrkja miðborgina.

  5. Ásdís Eir segir:

    Sammála öllu sem Anna og Una segja. Alltaf.

  6. Atli segir:

    Mér er alveg sama um allt ofantalið nema það að þú heldur því fram að þú sækir tíma í Þjóðminjasafninu.

  7. Önundr segir:

    “heldur því fram”
    ertu að rengja mig?

  8. Atli segir:

    Nei.

  9. Önundr segir:

    Nei, hættu því þá.

  10. Atli segir:

    Allt í lagi.

  11. Ómar Sigurvin segir:

    Kaffitár er okurbúlla. Einu sinni fannst mér þetta voða kósí fjölskyldufyrirtæki, svona eins og Bónus. En ekki lengur, ó nei, seisei. Svo er kakóið líka búið að lækka mjög í gæðum, frekar vel ég Swiss miss þessa dagana.
    Ómar og Margrét ættu að gifta sig, þá gætu þau keppst um að bulla hvort við annað, í stað þess að bulla í fjölmiðla. Ágætis fólk samt!

Skildu eftir svar