Lauflétt og leikandi

By valinkunnurandansmadur

Ég er að hugsa um að hætta að skrifa á íslensku og gerast rithöfundur á esperantó. Það er stórkostleg hugmynd. Þá munu menn lesa hin viðbjóðslegu verk mín jafnt í Japan og Kína sem í Önundarfirði. Hvers vegna ætti ég að skrifa fyrir Íslendinga? Að skrifa gagnlegar bækur handa Íslendingum, það er eins og að hella úr einum hjólbörum af kúamykju yfir Góbíeyðimörkina.

Hver lét þessi orð falla?

15 svör to “Lauflétt og leikandi”

  1. Grétar segir:

    Steinn Steinarr

  2. bjarnheidur segir:

    Þórbergur Þórðarson

  3. valinkunnurandansmadur segir:

    Ekki var það Steinn Steinarr. En Þórbergur Þórðarson var rétt svar. Jájá, ljómandi gott.

  4. Grétar segir:

    Það er erfitt að eiga svona menningarsnauða nafna

  5. Grétar segir:

    Ég meinti Þórbergur

  6. Önundr segir:

    Hér eru Grétarar
    Um Grétara
    Frá Gréturum? Frá Grétörum?
    Til Grétara

  7. Sjonni segir:

    Ég veit svarið! Þórbergur Þórðarson.

    Hahaha, ég vann.

  8. Önundr segir:

    Sjonni, þú færð glænýjan Honda CR-V að gjöf fyrir þetta.

  9. Grétar segir:

    Ég meinti í alvörunni Þórbergur. Það trúir mér bara enginn. Nema mínir nánustu auðvitað.

  10. Sjonni segir:

    Ég meinti líka Þórbergur. Djöfull rústaði ég þessu!

  11. Ómar Sigurvin segir:

    Hugsið þið aldrei um neitt nema kynlíf??

  12. Sjonni segir:

    Jú. Stundum hugsa ég um Þórberg.

  13. Önundr segir:

    Það er mikilvægt að þessu tvennu slái ekki saman.

  14. saga sem flaug hjá segir:

    halldór laxness ?

  15. Önundr segir:

    Nei, er eitthvað að þér?

Skildu eftir svar