Bakþankar Fréttablaðsins í dag eru ritaðir af Dr. Gunna. Það er alltaf gaman að lesa bakþankana, stundum eru þeir mjög skemmtilegir og útpældir og stundum algjört rugl. Dr. Gunni byrjar ekki vel í þetta skiptið þegar hann segir: “Stærri helmingur heimsbyggðarinnar dregst sífellt aftur úr, vannærður með rifbeinin út í loftið en minni helmingurinn, og þar á meðal við, verður að sama skapi feitari.”
Það er ekki oft sem menn hrista lesandann af sér á fyrstu metrunum en Dr. Gunni fer nálægt því þarna með því að tala um misstóra helminga einnar heildar. Þetta kemur bara eitthvað svo klaufalega út.