Hugmyndin var góð. Fólk hafði samt greinilega mjög takmarkaðan áhuga á þessu. Nýbýlavegurinn í Kópavogi var glæsilega flóðlýstur af fyrirtækjunum sem þar hafa starfsstöðvar og BSÍ var með Batmanljóskastarana á fullum styrk.
Sérstaka athygli vakti þó að Háskólabíó tók ekki þátt í myrkvuninni. En hún var einmitt skipulögð í sambandi við upphaf alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík – sem fer fram í Háskólabíói. Áhugavert.
Þó svo að borgin hafi hvergi verið nærri því að myrkvast var þetta áhugavert. Ég hélt einhvern veginn að götulýsingin væri miklu stærri hluti af borgarljósunum. En það var varla að maður sæi mun. Jú vissulega var hann greinilegur á Skólavörðuholtinu, á Seltjarnarnesi og í Hlíðunum. En þess utan sá ég harla lítinn mun. Það var kannski naívt af manni að halda að 200 þúsund manns tækju sig saman á einu bretti og gerðu eitthvað saman.
Tilraunin var hins vegar góð, það var töluverð stemning fyrir þessu hjá þeim sem vissu af því yfirleitt. Mér finnst að þeir ættu bara að reyna þetta aftur á næsta ári.
september 29, 2006 klukkan 4:18 pm
Nei, maður sér varla mun á götunum. Það er einmitt vegna þess að ljósastaurar reykjavíkurborgar (einkum þeir sem komu í tíð R-listans) lýsa aðallega upp himininn en ekki göturnar.
september 30, 2006 klukkan 10:26 am
Ég vona að þetta verði árlegt og að fólk taki betur við sér næst. Þetta á alveg að geta heppnast betur. Þessi hugmynd er svo brilliant.