Nú glápi ég töluvert á sjónvarp. Á meðal þess sora sem ég fylgist með er The Contender. Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með gengur hann út á að tattúveraðir og nefbrotnir menn gráta og tala um börnin sín á milli þess sem þeir slást eins og óargadýr. Þátturinn er á vissan hátt á sama siðferðisstandard og Bumfight myndböndin sem voru vinsæl á netinu fyrir nokkrum árum, þar sem rónum var borgað fyrir að fremja líkamsmeiðingar á sjálfum sér og öðrum rónum. Boxurunum er nefnilega lofuð 500.000 dollara summa ef þeir standa uppi sem sigurvegarinn.
En hvað sem því líður. Þátttakandi einn sem nú er dottinn út heitir Norberto Bravo. Hann er, eins og nafnið gefur til kynna af suður-amerískum uppruna, ellegar latino. Hann tók upp á því að tala sérlega mikið um kynþátt sinn og það hversu stoltur hann sé af því að vera af þeim kynþætti. Svo var hann með svona slagorð sem hann sagði alltaf fyrir slaginn: “Viva la raza!” eða “Lifi kynþátturinn!”. Reyndar sýndi þessi fjölskyldufaðir og tilfinningabangsi ekki af sér annað en góða hegðun og framkomu utan hringsins og virtist ekki vera haldinn hatri á mönnum af öðrum kynþáttum. En eitthvað segir mér þó að ef einn af hvítu gaurunum hefði sagt “Long life the race! Yeah!” fyrir slagi þá hefði verið þaggað niður í honum hið snarasta.